Tengill fyrir dk

Lýsing

Samstilltu WooCommerce-verslunina þína við dk. Tengill samstillir vöruverð og fjölda á lager og útbýr reikninga fyrir viðskiptavinina þína við afgreiðslu.

Um viðbótina

Tengill fyrir dk býr reikninga til sjálfkrafa eftir WooCommerce-pöntunum og samstillir vöruverð og fjölda á lager milli WooCommerce-verslunarinnar þinnar og dk-bókhaldskerfisins í gegn í dkPlus API.

Þessi viðbót keyrir algerlega á WordPress-uppsetningunni þinni, án þess að reiða sig á þjónustu þriðja aðila (fyrir utan dk og dkPlus) og er notuð og mælt með af WooCommerce-verslunum með þúsundir vörunúmera og mikla söluveltu.

Ólíkt öðrum viðbótum í þessum flokki, þá er Tengill frjáls hugbúnaður, enn haldið við og stutt er við hann af upprunalegum höfundi. Tengill hefur ekki tengsl við eða krefst þess að vefurinn þinn sé hýstur af ákveðnu fyrirtæki eða að þú breytir stillingum á vefþjóni til að virka rétt og hefur verið prófaður í fleiri en einu hýsingarumhverfi.

Þessi hugbúnaður fæst án endurgjalds, en hægt er að fá greidd notkunarleyfi á tengillpro.is.

🔄 Samstilling á vörum

Hægt er að stilla samstillingu á vörum af og þú hefur stjórn á því hvaða upplýsingar eru samstilltar eða hvort þú viljir skrá eða eyða WooCommerce-vörum sjálfkrafa úr eftir upplýsingum í dk. Þú getur líka notað Tengil án þess að samstilla vörur og notað t.d. bara sjálfvirka reikningagerð.

Samstilling á vörum virkar svo lengi sem viðbótin getur parað saman vörur úr WooCommerce eftir SKU við samsvarandi vörunúmer í dk.

Tengill fyrir dk blæs ekki úr nös ef þú ert með mikið vöruúrval, því samstillingu á vörum er skipt niður í smærri bunka, sem þýðir að hún virkar í bakgrunninum hjá flestum vefhýsingarfyrirtækjum.

✨ Vöruafbrigði

Það fylgir fullur stuðningur við vöruafbrigði og Tengill er með sitt eigið viðmóti til að meðhöndla þau umfram þær takmarkanir sem eru í dk. Einnig er stuðningur við B2B-möguleika á borð við hópverð, verð með og án VSK og aðgangur að WooCommerce per tengilið, sem auðveldar sölu og viðskipti við stærri fyrirtæki og stofnanir.

🧾 Reikningagerð

Tengill fyrir dk býr sjálfkrafa til reikninga þegar WooCommerce-pantanir eru kláraðar. Þú getur sent reikninga í tölvupósti beint til viðskiptavina eða sótt þá sjálfkrafa úr pöntunarviðmóti WooCommerce.

Ef það vantar SKU fyrir vöru í WooCommerce, þá er hægt að nota sjálfgefið vörunúmer eftir VSK-þrepi. Þú getur meira að segja sett inn skilyrði á sjálfvirka reikningagerð.

✅ Kreditreikningar við skil

Ef þú færir inn handvirk vöruskil fyrir pöntun í WooCommerce, þá er hægt að útbúa kreditreikning beint þaðan með Tengli fyrir dk.

Þetta þýðir að þú getur bæði útbúið debit- og kreditreikninga fyrir pantanir í gegn um vinnuflæðið í WooCommerce, með viðmóti sem þú þekkir og án þess að hleypa framlínustarfsfólki inn í dk.

🪪 Stuðningur við kennitölur

Ef þú þarft að stemma viðskiptavini í WooCommerce saman við upplýsingar úr dk, þá bætir Tengill fyrir dk við reit fyrir kennitölu í afgreiðsluformið, bæði í nýju útgáfuna sem notar blokkir og eldri útgáfuna, þannig að það er stuðningur við flest þau tól sem notuð eru við vefsmíðar. Þessi reitur sem samhæfður við reitinn sem viðbótin frá Póstinum notar.

Stilltu Tengil af eins og þú vilt. Þú getur látið kennitölureitinn verið skylda eða ekki og það er valfrjálst hvort þú búir til nýja skuldunauta út frá kennitölu.

Ef þú þarft ekki að nota kennitölu, þá geturðu skilgreint sjálfgefna kennitölu á borð við 000000-0000 fyrir pantanir úr WooCommerce.

👔 Viðskiptavinir og B2B-viðskipti

Tengill fyrir dk bætir við kennitölureit fyrir WooCommerce-notendur, þannig að Tengill getur sótt verðhópa, fasta prósentuafslætti og fleira frá dk fyrir innskráða notendur.

Þú getur líka skilgreint tengiliði fyrir B2B-viðskiptavini sem þýðir að þú getur haft fleiri en einn WooCommerce-notanda per viðskiptavin; einn fyrir hvern tengilið eða deild.

🤓 Keypt notkunarleyfi

Tengill fyrir dk var hannaður fyrir stórar WooCommerce-vefverslanir í fullum rekstri og hefur þann tilgang að hjálpa verslunareigendum við að bæta vinnuflæði.

Keypt notkunarleyfi fást á tengillpro.is.

Með keyptum pakka færðu aðgang að fyrsta flokks forgangsþjónustu, uppfærslur á undan öðrum og aðstoð við uppsetningu.

Ef þú þaft sérlausnir, aðstoð og þjónustu utan við WordPress.org, þá er keypt leyfi besta leiðin til að fá slíka þjónustu beint.

💎 Engin pirrandi markaðssetning eða falinn kostnaður

Við trúum því að beinar auglýsingar og markaðssetning skemmi fyrir vinnuflæði og að slíkt eigi alls ekki heima í hugbúnaði sem notaður er við vinnu. Viðbótin þrýstir því ekki á þig um að uppfæra með auglýsingaborðum eða auglýsingum — og enginn notkunarmöguleiki er falinn á bak við vegg.

Þessi útgáfa af Tengli fyrir dk er sú sama og þú færð með keyptu leyfi og henni fylgja allir möguleikar sem fylgja borguðu útgáfunni.

👩‍💻 Búið til af alvöru manneskju

Ég heiti Alda Vigdís. Ég vinn við að smíða hugbúnað, kerfisráðgjöf og passa upp á netþjóna. Tengill fyrir dk var búinn til af ást og umhyggju hér í Berlín og var ekki búin til sjálfkrafa af gervigreind.

⚖️ Lagalegir fyrirvarar

Þessi viðbót byggir á tengingu við dkPlus-forritaskilin (API) frá dk hugbúnaði ehf. dk býður upp á þá þjónustu skv þeirra eigin skilmálum (PDF) og persónuverndarstefnu (PDF).

Þessi viðbót er þróuð, haldið við og stutt við hana eftir bestu getu en engin ábyrgð er borin á virkni eða villuleysi til samræmis við GPLv3-leyfið. Þessi viðbót tengist við, notar og hefur áhrif á bókhaldsgögn í dk og það er eindregið mælt með því að taka öryggisafrit úr dk-bókhaldinu og að fylgst sé með færsluskrá og öðrum bókhaldsgögnum til að koma í veg fyrir óvæntar breytingar eða misræmi. Ennfremur er mælt með því að þú prófir viðbótina í raunprófunarumhverfi áður en það fer í fulla notkun.

Skjámyndir

Uppsetning

Þú getur setti Tengil upp á eigin vegum en athugið að það er gert ráð fyrir því að þú hafir nægilega þekkingu á bæði eigin WooCommerce-uppsetningu og eigin uppsetningu á dkPlus og dk-bókhaldskerfinu.

Það fyrsta sem þú þarft að gera er að frá aðgang að dkPlus-vefþjónustunni frá dk.

Þú þarft einnig að klára að setja upp WooCommerce-verslunina þína upp að vissu marki, þ.m.t. þrep fyrir 24%, 11% og 0% virðisaukaskatt, greiðslugáttir og hvort VSK sé innifalinn í verði eða ekki.

Smelltu á Tengill fyrir dk í hliðarstikunni í wp-admin til að opna stillingarnar.

Skráðu inn API-lykil fyrir notanda með nægilegan aðgang í WooCommerce 🠆 Tengill fyrir DK, stemmdu af greiðslugáttir í WooCommerce við greiðslumátana sem uppsettir eru í dk hjá þér og gaktu úr skugga um að aðrar stillingar séu til samræmis við þær sem eru í dk.

Spurðu bókarann eða fjármálastjórann þinn ef þú ert ekki viss um hvaða stillingar þú átt að færa inn.

Þegar tengingu hefur verið komið á mun viðbótin virka strax og skráir vörur og annað í dk þegar þær eru búnar til í WooCommerce, svo lengi sem vörunúmer og SKU er rétt upp sett fyrir hverja vöru.

SOS

Af hverju líta reikningarnir mínir öðruvísi út?

Tengill notar dkPlus-forritaskilin til að tala við dk-bókhaldskerfið. dkPlus notar sín eigin sniðmát fyrir reikninga og annað prentefni sem eru aðrar en í stóru útgáfunni af dk.

Ef þú þarft að setja vörumerkið þitt á dkPlus-reikningana þína, þá geturðu gert það með því að skrá þig inn í dkPlus og stillt sniðmátin til þar.

Þarf ég að setja inn réttar stillingar til að senda reikninga í tölvupósti?

Það þarf ekki að setja tölvupóstsendingar í WordPress á vefþjóninum þínum til að senda tölvupóst. Þar sem tölvupóstar eru sendir í gegn um dkPlus, þá þarftu aðeins að færa inn réttar stillingar í dk og færa inn rétta SPF-færslu í DNS-uppsetningunni fyrir lénið þitt til að hægt sé að senda reikninga.

Einnig er hægt að búa til og sækja reikning á PDF-formi beint úr pöntunarviðmóti WooCommerce.

Er þetta sami hugbúnaður og 1984-viðbótin?

Tengill á rætur að rekja til sama verkefnis og er búinn til af sama höfundi en er strangt til tekið ekki sami hugbúnaðurinn. Nafn fyrirtækisins, vörumerki og önnur hugverk sem falla ekki undir GPLv3-leyfið hafa verið afmáð og eru ekki notuð við markaðssetningu eða sölu samkvæmt beiðni frá 1984.

Síðan þá hefur orðið til allt önnur WordPress-viðbót sem er enn haldið við og stuðningur er enn fáanlegur.

Þessar tvær viðbætur eru ósamræmanlegar og ekki er hægt að skipta annari út fyrir hina án fyrirhafnar.

Til að nefna nokkra af þeim göllum og vandamálum sem hafa verið löguð, þá hefur skölun verið stórbætt sem þýðir að hægt er að samstilla þúsundir vara, bætta útreikninga á línuverði, samtalstölum og VSK, bættan stuðning við erlenda viðskiptavini, stórbætt notendaviðmót og nýja möguleika á borð við stuðning við vöruafslætti, samstillingu á vöruflokkum og tengiliði viðskiptavina.

Umsagnir

There are no reviews for this plugin.

Þátttakendur & höfundar

“Tengill fyrir dk&#8221 er opinn hugbúnaður. Eftirfarandi aðilar hafa lagt sitt af mörkum við smíði þessarar viðbótar.

Höfundar

“Tengill fyrir dk” has been translated into 1 locale. Thank you to the translators for their contributions.

Translate “Tengill fyrir dk” into your language.

Interested in development?

Browse the code, check out the SVN repository, or subscribe to the development log by RSS.

Breytingarsaga

0.8.1

  • Fixing layout issue in the variation editor
  • Removing i18n files from the codebase, replacing them with the WordPress.org language packs
  • Updates to documentation and build scripts

0.8

  • Re-namespacing the plugin as per the WordPress.org plugin review team
  • Fixing how variable product prices are displayed
  • Updating BigDecimal to v1.0
  • Fixing a race condition that caused products to be added twice
  • Fixing various other issues per the WordPress.org plugin review team

0.7.9

  • Fixing a bug that prevented the settings form from being submitted

0.7.8

  • Documentation changes
  • Fixing Icelandic language strings
  • Making API key input invisible until the input field is focused
  • Changes to development tools

0.7.7

  • Improving the handling of products with no or empty price attribute, improving stability overall

0.7.6

  • Now updating products when settings are saved
  • Improving error handling when the WooCommerce product lookup table is out of sync

0.7.5

  • Optimising configuration value caching, reducing database load
  • Caching the current customer object, reducing database load
  • Skipping over trashed products when updating

0.7.4

  • Overhauling SQL queries for product sync
  • Improving sale and discount price display

0.7.3

  • Fixing a bug that prevented before/after sale prices from displaying correctly

0.7.2

  • Defining 7.0 as the target WordPress version
  • Extending automatic invoice generation to cover 48 hours instead of the past 4 hours
  • Adding support for logged-in users’ default payment terms
  • Various improvements for coding and CI processes

0.7.1

  • Fixing a crash in the cart
  • Fixing scaling issues by optimising database queries, so some actions take only a fraction of the time they took

0.7.0

  • Displaying live import and deletion information with a progress bar on the admin page
  • Removing the „import as draft“ feature
  • Changing the product update interval to 2 minutes from 5
  • Improving support for product discounts
  • Indicating support for WordPress 7.0
  • Various bug fixes and minor improvements

0.6.9

  • Introducing product quantity filters
  • Enabling product deletion if non-web products are not fetched from dk

0.6.8

  • Fixing product variation caching and sync issue
  • Fixing how invoice numbers and errors are displayed in the WooCommerce order list
  • Fixing type errors in product variation interface

0.6.7

  • Cleaning up wp-cron jobs
  • Hiding product categories/group UI from the admin page when not in use

0.6.6

  • Making the use of „default SKUs“ if a product SKU is not set optional

0.6.5.1

  • Fixing Icelandic language strings

0.6.5

  • Splitting the monolithic cron job into multiple smaller ones
  • Optionally deferring invoice generation to a cron job

0.6.4.2

  • Further improvements to caching strategy
  • Further improvements to invoice generation and subtotal/total rounding

0.6.4.1

  • Updating attribute caching strategy, making the UI more stable when the dkPlus API isn’t responding and improving speed

0.6.4

  • Revamping the customer discount system, which now works with blocks (FSE/Gutenberg)
  • Fixing off-by-one errors for customers price groups
  • Fixing email delivery for international orders

0.6.3

  • Improving discount display for logged-in customers

0.6.2

  • Removing the variation discount filter as it was causing discounts to be applied twice
  • Rounding customer discounts for improved accuracy
  • Tweaking attribute caching strategy

0.6.1

  • Rounding imported product prices and discounted customers’ prices

0.6.0

  • Improving handling for slow dkPlus API response times
  • Introducing product category sync
  • Introducing per-refund credit invoices
  • Labelling customer discounts as experimental
  • Fixing a bug that caused customer discounts to be stacked

0.5.2

  • Fixed 11% VAT matching for products without SKU

0.5.1

  • Added rawurlencode to any dynamic URL API requests for improved safety
  • Fixed a bug that prevented the sales person number from being updated
  • Fixed a bug that prevented payment some gateways from showing up in the admin page
  • Fixed a but that prevent customer contacts from being assigned to invoices
  • Fixing discrepancy between license date display between backend and frontend

0.5

  • A rebrand and re-namespacing of a new fork
  • Moved per-product DK options into a separate tab in the Product Editor
  • Fixed a bug that affected invoices for product variations with two attributes
  • Improved error handling in invoice generation
  • Improved variation display on the frontend
  • Improved code for tax rate matching
  • Improved the loading speed of the admin page tenfold by using transient values
  • Added a readiness check to the admin page
  • Made product sync optional
  • Removed any upstream push for products
  • Rearranged and adding new options to the admin page
  • Products-as-variations should now be possible
  • The kennitala field can now be made mandatory
  • Improved support for international orders and customers
  • Added support for per-customer price groups and discounts
  • Improved the precision of imported product sales prices, rounding them down
  • Introducing support for item discounts on invoices and in the Order Editor
  • Products no longer need to be available in order for invoices to be generated
  • Invoice generation is now limited to orders made with the plugin installed
  • Enabling arbitrary configuration using PHP constants
  • Improving PDF invoice retreival, enabling support for Chrome and Safari
  • Improving arithmetic precision
  • Adding vat-specific token product codes that are used when a product SKU is missing
  • Improvements to the settings form
  • Fixing textdomain issues
  • Enabling coupon discounts
  • Added support for customer contacts for registered customers (signed-in users)
  • Added a licensing system
  • Uppfærslum í gegn um Github bætt við
  • Nákvæmni VSK-útreikninga bætt
  • Íslandi bætt í lista yfir lönd sem nota VSK í WooCommerce